Laug.is logo

Vefkökustefna og skilmálar

Um vefkökur

Laug.is notar vefkökur (e. cookies) til að bæta virkni vefsins og greina notkun hans. Vefkaka er lítil textaskrá sem er vistuð á tölvu eða snjalltæki notanda þegar vefsíða er heimsótt. Vefkökur gera vefnum kleift að muna val notenda, stillingar og aðrar upplýsingar sem auðvelda notkun síðunnar og bæta upplifun.

Með því að nota vefinn samþykkir þú notkun vefkaka í samræmi við þessa stefnu. Hægt er að stilla vafra þannig að hann hafni vefkökum eða láti vita þegar vefkaka er send, en það getur haft áhrif á virkni vefsins.

Notkun á gögnum

Laug.is notar Google Analytics til að safna tölfræðilegum upplýsingum um heimsóknir á vefinn, svo sem fjölda gesta, hvaða síður eru skoðaðar og hversu lengi notendur dvelja á hverri síðu. Þessar upplýsingar eru notaðar í þeim tilgangi að bæta efni, uppsetningu og notendaupplifun vefsins.

Gögn sem safnað er með Google Analytics eru nafnlaus og ekki notuð til að bera kennsl á einstaka notendur. Upplýsingarnar eru unnar í samræmi við persónuverndarstefnu Google.

Vefkökur þriðja aðila

Auk eigin vefkaka getur Laug.is notað vefkökur frá þriðja aðila, svo sem Google, í tengslum við greiningu á notkun vefsins. Slíkir aðilar kunna að safna upplýsingum um heimsóknir á vefinn í samræmi við sínar eigin persónuverndar- og vefkökustefnur.

Laug.is hefur ekki stjórn á notkun vefkaka þriðja aðila og er notendum bent á að kynna sér skilmála og persónuverndarstefnur viðkomandi þjónustuaðila.

Afritun og endurnýting efnis

Óheimilt er að safna, afrita, skrapa (e. scrape), endurbirta eða endurnýta efni af Laug.is, hvort sem er með handvirkum aðferðum, sjálfvirkum forritum, vefþjónustum eða í gegnum forritaskil (API), nema með skriflegu leyfi.

Þetta á m.a. við um lýsingar á sundlaugum, gagnasöfn, verðupplýsingar, opnunartíma, texta, uppbyggingu gagna, kóða og aðra skipulagða framsetningu upplýsinga. Efni af vefnum má ekki nýta í viðskiptalegum tilgangi né sem hluta af öðrum vefjum, öppum eða gagnagrunnum án heimildar.

Takmörkun á ábyrgð

Allar upplýsingar á Laug.is eru veittar í upplýsingaskyni. Laug.is ber enga ábyrgð á nákvæmni, heilleika eða áreiðanleika efnis á vefnum né á tjóni sem kann að hljótast af notkun hans, hvort sem tjónið er beint eða óbeint.

Engin ábyrgð er tekin á efni sem tengt er í á vefnum eða á þjónustu þriðja aðila sem vísað er til. Notkun vefsins er alfarið á ábyrgð notanda.