Laug.is logo

Vatnaveröld Reykjanesbæ

Vatnaveröld í Reykjanesbæ er ein fullkomnasta sundmiðstöð landsins og býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Þar má finna eina glæsilegustu 50 metra innilaug landsins, sem hentar jafnt til æfinga sem og almennrar sundiðkunar. Utandyra er 25 metra útilaug, fjórar heitar setlaugar, grunn barnalaug og kalt kar. Eimbað er einnig við laugarsvæðið. Innandyra er glæsilegur vatnsleikjagarður með fjölbreyttum leiktækjum sem fellur vel í kramið hjá yngstu kynslóðinni. Sérklefar eru í boði fyrir þá sem kjósa meiri næði og aðstaðan hentar vel jafnt íbúum svæðisins sem og gestum sem vilja skella sér í sund til að slappa af eða leika sér.

Sunnnubraut 31, 230 Reykjanesbæ