Laug.is logo

Sundlaugin Hlöðum

Sundlaugin að Hlöðum er útilaug staðsett við félagsheimilið Hlaðir í Hvalfjarðarsveit. Laugin er 16,7 x 8 metrar að stærð og hentar vel fyrir sundferð í sveitinni. Við laugina er grunn barnavaðlaug með lítilli rennibraut, tveir heitir pottar með mismunandi hitastigi, kalt kar og saunaklefi sem rúmar um tíu manns. Búningsklefar eru bæði inni í kjallara félagsheimilisins og utandyra. Á bakkanum er boðið upp á kaffi fyrir gesti. Sundlaugin er opin yfir sumarmánuðina. Einnig er hægt að leigja laugina utan reglulegs opnunartíma í tengslum við viðburði eða leigu á tjaldsvæðinu við hliðina. Tjaldsvæði með góðri aðstöðu er við sundlaugina og í nágrenni eru vinsæl útivistarsvæði og áfangastaðir á borð við Glym í Botnsá og gönguleiðir um Síldarmannagötur að ógleymdu Hernámssetrinu í Hvalfirði.

Hlöðum, 301 Akranesi (dreifbýli)