Laug.is logo

Sundlaugin á Drangsnesi

Sundlaugin á Drangsnesi er þægileg útilaug sem var opnuð árið 2005. Hún er 12,5 metra löng og stendur á fallegum stað með víðáttumiklu útsýni yfir Steingrímsfjörð og eyjuna Grímsey, sem er stærsta eyjan við Strandir. Við laugina er heitur pottur með vatnsnuddi, vaðlaug fyrir yngri gesti og gufubað innandyra. Aðstaðan er einföld og notaleg og nýtur mikilla vinsælda bæði meðal heimafólks og ferðafólks sem á leið um svæðið. Sundlaugin er í hjarta þorpsins og er góð aðstaða er til staðar til að hafa fataskipti. Þar er jafnframt stutt á milli sundlaugar og hinna þekktu Dramgsnespotta niðri við sjóinn, en þeir hafa gert bæinn að eftirsóttum áfangastað.

Grundargötu 15 Sundlaugin Drangsnesi, 520 Drangsnesi