Sundlaug Njarðvíkur
Sundlaug Njarðvíkur er lítil og róleg innilaug sem býður upp á þægilega aðstöðu fyrir bæði sundiðkun og slökun. Laugin sjálf er 12,5 metra löng og hentar vel til léttari æfinga. Á útisvæði eru heitir pottar ásamt því að hægt er að fara í gufubað sem eru opin allt árið. Yfir sumarmánuðina er sundlaugin sjálf lokuð en gestir hafa áfram aðgang að pottum, gufu og líkamsræktarstöðinni. Aðstaðan hentar vel þeim sem vilja rólega sundferð, þægilega slökun eða spjalla í pottunum.