Laug.is logo

Sundhöll Seyðisfjarðar

Sundhöll Seyðisfjarðar stendur við Suðurgötu 5 í miðbæ Seyðisfjarðar í Múlaþingi. Húsið var byggt árið 1948 og teiknað af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, og var sundlaugin formlega opnuð 8. júlí sama ár. Í sundhöllinni er innilaug, 12,5 x 7 metrar, með búningsaðstöðu á sama húsi. Inni eru tveir heitir pottar og sauna. Utan við húsið er heitur pottur og kalt kar og gengið er út í afgirt útisvæði sem nýtist sem garður með setaðstöðu. Sundlaugin er oft hituð hærra en hefðbundnar sundlaugar, meðal annars vegna ungbarnasunds. Sundhöll Seyðisfjarðar er rekin af Múlaþingi og tengist íþrótta- og tómstundastarfssemi bæjarins. Hún þjónar íbúum Seyðisfjarðar og nærsveita, meðal annars fyrir almenningssund, kennslu og ungbarnasund en en ekki síður ferðamönnum.

Suðurgötu 5, 710 Seyðisfjörður