Sundhöll Selfoss
Sundhöll Selfoss er staðsett í miðbæ Selfoss í göngufæri frá verslun og þjónustu í bænum. Sundlaugin er ein sú stærsta á Suðurlandi og árlega koma yfir 200.000 gestir í laugina. Aðstaðan samanstendur af 25 metra útilaug, 18 metra innilaug, barnalaug með þremur rennibrautum, vaðlaug, eimbaði, sauna, heitum og köldum pottum. Innandyra er einnig barnalaug sem bætt var við í viðbyggingu sem opnuð var árið 2015. Þá voru jafnframt byggðir stærri búningsklefar og ný afgreiðsla. Sundhöllin hefur fjóra búningsklefa – tvo inniklefa og tvo útiklefa – með sérklefum fyrir fatlaða í báðum. Góð aðstaða er fyrir hjólastóla og aðgengi er gott fyrir alla gesti. Innilaugin er nýtt fyrir skólasund og sundæfingar en er opin almenningi utan æfingatíma. Á efri hæð Sundhallarinnar er líkamsræktarstöð sem deilir afgreiðslu með sundlauginni.