Sundhöll Ísafjarðar
Sundhöll Ísafjarðar er ein glæsilegasta sundlaug Vestfjarða og hefur verið í stöðugri notkun frá því hún var opnuð árið 1946. Sundlaugin er 16 metra löng innilaug og við hana er heitur pottur og kalt kar. Byggingin var hönnuð af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, og telst til merkari opinberra bygginga frá miðri 20. öld. Hún er staðsett við Austurveg, miðsvæðis í Ísafjarðarbæ. Í sama húsi er leikfimisalur, sem nýttur er til almennrar íþróttaiðkunar og kennslu. Í kjallara hússins hefur félagsmiðstöðin Djúpið aðstöðu. Húsið hefur gegnt margvíslegu hlutverki í gegnum tíðina, þar á meðal sem bókasafn bæjarins og tímabundin leikskóladeild. Sundhöllin hefur frá upphafi verið mikilvæg kennslulaug fyrir grunnskólabörn og áður fyrr æfingaaðstaða sunddeildar Vestra. Við innganginn má sjá tvær styttur í sundfötum, verk myndhöggvarans Martinus Simson, sem standa fyrir þá sérstöðu sem sundlaugin hefur haft í bæjarlífinu um áraskeið.