Sundhöll Hafnarfjarðar
Sundhöll Hafnarfjarðar er með elstu laugum landsins og opnaði upphaflega árið 1943. Í upphafi var sjó dælt úr firðinum, hann hreinsaður og hitaður með kolum áður en vatninu var veitt í laugina. Árið 1953 var sundlaugin yfirbyggð og breytt í sundhöll, sem gerir hana að elstu yfirbyggðu sundlaug bæjarins. Arkitekt laugarinnar var Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins. Laugin státar af 25 metra innilaug sem er 8,7 metrar á breidd og allt að 3,2 metra djúp í dýpri enda. Í dýpri enda laugarinnar er stökkbretti. Í afgirtum garði við sundlaugarbygginguna eru tveir rúmgóðir heitir pottar, þar af einn með öflugum nuddtækjum. Þar má einnig finna kaldan pott. Í búningsklefum eru aðgreindir saunaklefar fyrir karla og konur. Sundhöllin er þekkt fyrir sitt rólega andrúmsloft og hefur verið vinsæll áfangastaður fyrir bæjarbúa og nemendur í skólasundi. Bygging sundlaugarinnar hófst árið 1940 en framkvæmdir töfðust vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. Laugin var opnuð með viðhöfn árið 1943 og var mikil bylting fyrir íbúa Hafnarfjarðar, sem áður höfðu þurft að stunda sundkennslu í sjónum við mismunandi aðstæður. Með yfirbyggingunni árið 1953 og lagningu hitaveitu árið 1976 varð Sundhöll Hafnarfjarðar miðpunktur sundkennslu og æfinga í bænum. Sundhöllin hefur haldið sínum upprunalega sjarma og árið 2023 var haldið upp á 80 ára afmæli laugarinnar. Í gegn um sína einstöku sögu og rólegu stemningu, er sundhöllin áfram mikilvægur vettvangur fyrir sundiðkun, afslöppun og samveru.