Selárlaug
Selárlaug er sundlaug á Austurlandi, staðsett við bakka Selár þar sem áin rennur um grunnt gljúfur. Laugin er um 12 km frá þéttbýlinu í Vopnafirði og stendur í grónu og skjólgóðu umhverfi nærri náttúrulegri heitavatnsuppsprettu sem áður var nýtt beint í laugina. Í dag er vatnið úr uppsprettunni notað til upphitunar. Á svæðinu er sundlaug, rúmgóður heitur pottur, barnalaug og stór sólpallur ásamt nestisaðstöðu fyrir gesti. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott og laugin er einnig nýtt til sundkennslu yfir haust- og vormánuði. Selárlaug var byggð sumarið 1949 af félagsmönnum Ungmennafélagsins Einherja í Vopnafirði og var vígð árið 1950. Bygging hennar fór að stórum hluta fram í sjálfboðavinnu og hefur laugin síðan verið endurbætt og viðhaldið reglulega.