Sælingsdalslaug
Sælingsdalslaug er 25 metra útilaug staðsett í Laugum, Dölum, ásamt vaðlaug, tveimur heitum pottum og gufubaði. Laugin stendur í grösugum og skjólgóðum dal sem umkringdur er lágum fjöllum og hefur að geyma jarðhita sem nýtist til húshitunar og upphitunar laugarinnar. Heitt vatn kemur frá náttúrulegum uppsprettum sem koma undan hlíðinni fyrir ofan laugina. Boranir fyrir heitu vatni fóru fram á árunum 1964–1965 og allar byggingar á staðnum, þar á meðal sundlaugin, eru hitaðar með vatni úr þessum uppsprettum. Sælingsdalur er sögulegur staður þar sem Guðrún Ósvífursdóttir, ein af aðalpersónum Laxdælu, var fædd og alin. Laugar í Sælingsdal eru meðal þeirra staða sem nefndir eru í sögunni og benda heimildir til að fólk hafi nýtt sér heitar laugar á svæðinu allt frá landnámi. Fyrir ofan laugina og skólabygginguna er hlaðin náttúrulaug sem byggð í anda fornra lauga. Sælingsdalur er rómaður fyrir náttúrufegurð og ríka sögu, sem gerir heimsókn í Sælingsdalslaug að verðugri upplifun.