Hraunborgir
Sundlaugin við Hraunborgir er lítil og notaleg sveitasundlaug staðsett í grónu og skjólgóðu umhverfi skammt frá Selfossi. Á svæðinu er útilaug, heitir pottar og sauna. Boðið er upp á sólbekki og möguleika á að fá drykki og krap beint í pottana á góðviðrisdögum. Sundlaugin er vinsæl meðal gesta sem sækjast eftir afslöppun og rólegu andrúmslofti í sveitinni. Í afgreiðslu er hægt að fá sundföt, handklæði og sundbleiur, auk leikfanga og sundkúta fyrir börnin. Laugin og aðstaðan er einnig í boði til leigu fyrir hópa og viðburði með möguleika á veitingum eftir samkomulagi.