Laug.is logo

Bylta Bíldudal

Bylta er íþróttamiðstöð á Bíldudal sem var tekin í notkun 4. október 2003. Þar er heitur pottur, gufubað, íþróttasalur og þreksalur - en athugið að hér er engin sundlaug. Íþróttamiðstöðin er staðsett í miðjum bænum, rétt við tjaldsvæðið. Þreksalarkort sem keypt eru í Byltu gilda einnig í Bröttuhlíð á Patreksfirði. Almenn mánaðarkort og árskort eru persónubundin og ekki hægt að samnýta þau milli einstaklinga.

Hafnarbraut 15, 465 Bíldudal