Breiðholtslaug
Breiðholtslaug er staðsett við Gerðuberg í Breiðholti, nálægt Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og Fellaskóla. Sundlaugin var upphaflega byggð sem skólasundlaug og opnaði formlega árið 1981. Hún býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir gesti á öllum aldri, með bæði úti- og innilaug, heitum pottum, rennibrautum og gufuböðum. Aðallaugin er 25 metrar með fimm brautum og hitastigið er 29°C. Auk hennar er 12,5×8 metra innilaug með 30°C heitu vatni og sams konar útilaug með 32°C hitastigi. Vaðlaug á útisvæðinu er 3×4 metrar að stærð og 35–37°C heit, sem hentar vel fyrir yngri gesti. Á svæðinu eru þrír heitir pottar, þar á meðal nuddpottur með 39°C heitu vatni og tveir pottar með hitastigi 38–40°C og 41–44°C. Einnig er kaldur pottur með hitastigi 8–12°C og gott gufubað og eimbað. Rennibrautirnar tvær eru vinsælar meðal barna og eru 25 og 30 metrar á lengd. Þess að auki eru leiktæki og minni barnarennibraut. Breiðholtslaug er vel aðgengileg fyrir fólk með hreifihamlanir, með lyftu til að komast ofan í laugina og hjólastólaaðgengi að sauna. Laugin hefur hlotið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar sem staðfestir stuðning við LGBT+ samfélagið. Í nágrenni við Breiðholtslaug eru merktar hlaupaleiðir í fallegu umhverfi sem bæta upplifun þeirra sem vilja nýta útivistarsvæðið. Laugin býður fjölskylduvæna aðstöðu og er vinsæll staður fyrir slökun, sund og leik.