Laug.is logo

Bjarnalaug Akranesi

Bjarnalaug er 12,5 m innilaug með heitum potti sem staðsettur er í laugargarði utandyra. Bjarnalaug er einstaklega skemmtileg sundlaug og til gamans má geta þess að Bjarnalaug er til útleigu fyrir hin ýmsu tækifæri en athugið að útleiguhópar verða að vera eldri en 18 ára. Bjarnalaug er staðsett að Laugabraut 6 og er hún orðin 70 ára gömul. Laugin er notuð í dag sem kennslulaug fyrir Brekkubæjarskóla en einnig fer þar fram ungbarnasund og sundskóli. Bjarnalaug er opin almenningi yfir vetrartímann (september og til loka apríl) á laugardögum frá kl. 10.00-15.00 og sunnudaga frá kl. 10.00-15.00 en þá er laugin hituð í 33 - 34°C.

Laugarbraut 6, 300 Akranesi