Laug.is logo

Vök Baths

Vök Baths er baðaðstaða við Urriðavatn skammt frá Egilsstöðum á Austurlandi, við Hróarstunguveg (veg 925). Böðin eru byggð upp við vatnið þar sem jarðhitavatn úr borholum er nýtt í laugar og potta á svæðinu. Í lóninu eru fljótandi heitir pottar í Urriðavatni sem renna saman við vatnið með glæsilegum hætti. Í landi eru fleiri pottar og eimbaði. Einnig er aðstaða til kaldböðunar í vatninu. Vatnið í böðunum er blanda af jarðhitavatni og vatni úr Urriðavatni og er ekki klórað eða efnameðhöndlað. Í þjónustuhúsinu eru búningsklefar, tebar og laugarbar. Á staðnum er einnig veitingastaðurinn Vök Bistro sem býður léttar veitingar með útsýni yfir vatnið.

Vök, við Urriðavatn, 701 Egilsstöðum (dreifbýli)