Laug.is logo

Sundlaugin í Vík í Mýrdal

Sundlaugin í Vík í Mýrdal er staðsett við Mánabraut 3 og er hluti af íþróttamiðstöð bæjarins, þar sem einnig er íþróttasalur og líkamsræktaraðstaða. Laugin er útilaug sem er 16,7 metrar á lengd, þar sem vatnshitinn er um 28 til 29°C. Við hlið hennar er barnalaug með 37 til 38°C vatni, heitur pottur með 40 til 42°C og kaldur pottur. Á svæðinu er einnig gufubað. Aðstaðan hentar jafnt íbúum sem ferðamönnum sem vilja skella sér í sund í rólegu umhverfi. Sundlaugin er miðsvæðis í þorpinu og í göngufæri frá tjaldsvæði og annari þjónustu í Vík. Hún er vel sótt allt árið, enda er hún einn af föstu viðkomustöðum sumra þeirra sem ferðast um Suðurland.

Mánabraut 3, 870 Vík í Mýrdal