Sundlaugin Varmahlíð
Sundlaugin í Varmahlíð er staðsett við Varmahlíðarskóla í byggðakjarnanum Varmahlíð í Skagafirði, skammt frá þjóðvegi 1. Hún er rekin af Sveitarfélaginu Skagafirði og þjónar bæði íbúum svæðisins og ferðamönnum. Á svæðinu er útilaug sem er tvískipt, annars vegar 12,5 x 25 metra sundlaug og hins vegar um 12,5 x 8 metra grynnri barnalaug þar sem vatnið er heitara. Í barnalauginni er lítil rennibraut og við sundlaugarsvæðið er heitur pottur. Árið 2018 var tekin í notkun ný vatnsrennibraut, um 7 metra há og 47 metra löng. Við sundlaugina er leik- og íþróttasvæði með körfuboltavelli og í nágrenninu eru sparkvöllur og ærslabelgur. Laugin er hluti af íþrótta- og tómstundaaðstöðu Varmahlíðar og er notuð bæði til sundkennslu og annarar sundiðkunar.