Laug.is logo

Sundlaugin Laugaskarði

Sundlaugin í Laugaskarði er 50 metra útilaug sem staðsett er í skjólsælu umhverfi í Laugaskarði í Hveragerði. Laugin er 50 metra löng og 12 metra breið og var lengi vel stærsta sundlaug landsins. Hún er gegnumrennslislaug, hituð með jarðgufu sem tryggir stöðugt hitastig og hreint vatn án mikillar klórnotkunar. Á sundlaugarsvæðinu er einnig heit grunn setlaug, kaldur pottur, heitur pottur með rafmagnsnuddi og náttúrulegt gufubað sem er eitt það merkilegasta í landinu. Við laugina eru einnig tveir strandblaksvellir og líkamsræktarsalur sem íþróttafélagið Hamar rekur í sundlaugarhúsinu. Sundlaugin á sér langa sögu og var fyrst tekin í notkun árið 1938 eftir mikið átak í sjálfboðavinnu á vegum Ungmennafélags Ölfushrepps. Árið 1945 var hún svo stækkuð í núverandi stærð. Lárus Rist, sundkappi og frumkvöðull, gegndi lykilhlutverki við val á staðsetningu og uppbyggingu. Um tíma æfði íslenska landsliðið í sundi í lauginni, allt til ársins 1966 þegar Laugardalslaugin tók við því hlutverki. Rekstur og viðhald sundlaugarinnar er í höndum Hveragerðisbæjar.

Laugaskarði, 810 Hveragerði