Sundlaugin Laugalandi
Sundlaugin Laugalandi er staðsett við Laugalandsskóla í Holtum, um 6 km frá þjóðvegi 1 við Landvegamót. Frá Selfossi eru um 35 km og frá Reykjavík um 90 km. Laugin er 8 x 16 metra útilaug með tveimur heitum pottum og rennibraut, sem gerir hana að vinsælum viðkomustað bæði fyrir heimamenn og gesti á ferð um Suðurland. Laugin gegnir bæði mikilvægu hlurverki í skólastarfi og fyrir almenning og ferðamenn sem vilja komast í sund. Í nágrenni má finna vinsæla útivistarstaði á borð við Galtalækjarskóg, sem er í sömu afleggjara og sundlaugin, auk þess sem að umhverfi Laugalands er ríkt af náttúruperlum og tækifærum til afþreyingar. Þetta gerir sundlaugina að þægilegum og fjölskylduvænum áningarstað í sveitinni.