Sundlaugin á Flúðum
Sundlaugin á Flúðum er 25 metra útilaug með tveimur heitum pottum, köldu keri, náttúrulegu gufubaði og infrarauðum klefa. Laugin er hluti af íþróttaaðstöðu sveitarfélagsins og nýtir jarðhita úr nærumhverfinu. Aðstaðan er látlaus en býr yfir öllu því helsta sem þarf til sund- og baðferða allt árið um kring. Flúðir eru vaxandi þéttbýlisstaður í Hrunamannahreppi og liggja við Gullna hringinn, í innan við 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Svæðið er þekkt fyrir gróskumikla garðyrkju, mikinn jarðhita og veðursæld yfir sumartímann. Fjöldi garðyrkjustöðva er á svæðinu og víða má kaupa ferskt grænmeti beint frá býli, til dæmis í Litlu bændabúðinni. Í nágrenni sundlaugarinnar eru fjölbreyttir gistimöguleikar, þar á meðal hótel, gistiheimili, heimagisting og tjaldsvæði. Veitingastaðir á svæðinu leggja áherslu á hráefni úr nærumhverfinu. Afþreying í nágrenninu felur meðal annars í sér golf (18 holu völlurinn Selsvöllur), frisbígolf, hestaferðir, söfn og margskonar útivist. Í grennd við laugina eru einnig aðrir baðstaðir, svo sem Secret Lagoon (Gamla laugin á Flúðum), Hrunalaug. Heita vantið og náttúrulegar hverauppsprettur gera svæðið að áhugaverðum áfangastað fyrir alla áhugamenn um laugarmenningu landsins. Flúðir eru vel staðsettar fyrir þá sem vilja heimsækja náttúruperlur á borð við Gullfoss, Geysi og Brúarhlöð, sem eru í innan við hálftíma akstursfjarlægð.