Laug.is logo

Sundlaug Vestmannaeyja

Sundlaugin í Vestmannaeyjum var opnuð 10. júlí 1976 og er ein fjölbreyttasta og best útbúna sundlaug landsins. Innisundlaugin er 25 × 11 metrar með 0,9% söltu vatni og er búin 1 metra stökkbretti, flotleiktækjum og ýmsum öðrum vatnsleikföngum. Á útisvæðinu, sem var tekið í notkun vorið 2010, eru tveir heitir pottar og stór nuddpottur með góðu yfirsýni yfir leiksvæði barna. Þar er einnig stór leiklaug með klifurvegg, körfum, barnarennibraut og sérstakt svæði fyrir þau yngstu. Tvær rúmlega 20 metra langar rennibrautir eru á svæðinu, þar af ein með innbyggðu trampólíni sem skýtur sundgestum út í aðallaugina. Útisvæðið er auk þess með stórum sólpalli. Um helgar er hitastig aðallaugar hækkað úr 29,5°C í 31,5°C, sem nýtur mikilla vinsælda meðal fjölskyldna og foreldra með ung börn. Aðstaðan er mjög aðgengileg fyrir hreyfihamlaða og fatlað fólk, með sérstökum búningsklefum og góðu hjólastólaaðgengi. Einnig er boðið upp á sérklefa fyrir transfólk, kynsegin, intersex, foreldra fatlaðra barna og aðra sem þurfa á aðstoð að halda við sundferðir. Hreyfanleg lyfta er til staðar fyrir þá sem vilja fara í sundlaugina eða potta.

Brimhólalaut, 900 Vestmannaeyjum