Sundlaug Þorlákshafnar
Sundlaug Þorlákshafnar er hluti af Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar og býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir sund og líkamsrækt. Þar er 25 metra útilaug, tveir heitir pottar, vaðlaug, tvær vatnsrennibrautir og barnvæn 45 cm djúp innilaug með vatnsleiktækjum. Við laugina er gufubað, tveir rúmgóðir búningsklefar og sérklefar fyrir fatlaða. Á annarri hæð miðstöðvarinnar er líkamsræktaraðstaða með vel útbúnum tækjasal og hópsal. Þar eru einnig tveir heitir pottar og eitt kalt kar á útisvölum. Búningsklefar og saunaklefar eru einnig á staðnum. Aðgangur að pottum á efri hæð fylgir ræktinni án aukagjalds. Íþróttamiðstöðin er í göngufæri frá tjaldsvæði bæjarins.