Sundlaug Ólafsvíkur
Sundlaug Ólafsvíkur stendur við Ennisbraut, við hlið grunnskólans og íþróttasvæðisins við Engihlíð. Hún er hluti af Íþróttamiðstöð Snæfellsbæjar og býður upp á bæði inni- og útisvæði. Innilaugin er 12,5 metra löng og þar er einnig heitur pottur. Á útisvæðinu eru tveir heitir pottar, vaðlaug og rennibraut. Laugin var endurbætt veturinn 2013–2014 þegar húsnæðið var gert bjartara og útisvæðið stækkað. Sundlaugin er opin allt árið, en á skólatíma geta takmarkanir verið á aðgengi að innilauginni vegna skólasunds og sundæfinga, en þá er hægt að fara á útisvæði.