Laug.is logo

Sundlaug Akureyrar

Sundlaug Akureyrar er staðsett við Skólastíg 4 á Akureyri og er hluti af íþrótta- og frístundaaðstöðu Akureyrarbæjar. Laugarsvæðið er í hjarta bæjarins og í göngufæri frá miðbænum. Á svæðinu eru tvær 25 metra útilaugar og 12,5 metra innilaug. Á útisvæðinu eru fjórir heitir pottar, kaldur pottur, gufubað, vaðlaugar og þrjár rennibrautir. Þar á meðal er lengsta vatnsrennibraut landsins. Innanhúss er volgur pottur. Bæði eru inni- og útiklefar. Yfir sumarmánuðina er opið sólbaðssvæði og leiksvæði með gervigrasi. Sérstakur einstaklingsklefi með lyftuaðgengi, sturtu og hreyfanlegum bekk er í boði fyrir fatlað fólk og aðra sem óska þess. Stólalyftur eru við innilaug, báðar útilaugar og einn heitan pott. Sundlaug Akureyrar er reglulegur vettvangur fyrir sundæfingar, almenningsbað og útivist íbúa og gesta á Norðurlandi.

Þingvallastræti 21, 600 Akureyri