Skeiðalaug Brautarholti
Skeiðalaug er útisundlaug í Brautarholti við þjóðveg nr. 30 og var tekin í notkun 15. nóvember 1975. Hún var hönnuð af Jes Einari Þorsteinssyni arkitekt og er 16,68 metrar að lengd og 8 metrar á breidd. Upphaflega var laugin með einum heitum potti og vatnsgufubaði, en á árunum 2023–2024 fór fram umfangsmiklar endurbætur þar sem húsið var lagfært, gufubaðinu skipt út fyrir þurrgufu, nýr kaldur pottur settur upp innandyra og tveir stórir heitir pottar bættust við, annar með nuddi. Einnig var infrarauð sauna sett upp. Skeiðalaug er í dag orðin að fjölbreyttri vellíðunarlaug með sundlaug, heitum pottum, köldu kari, þurrgufu og infrarauðri saunu. Á svæðinu er einnig íþróttavöllur, leikskóli, félagsheimili, gisting og tjaldsvæði sem hefur aðstöðu inni í sundlaugarbyggingunni. Aðdragandi byggingarinnar tengdist bæði skólastarfi og samfélagsþróun í hreppnum. Jón Eiríksson í Vorsabæ, oddviti Skeiðahrepps, var einn helsti hvatamaður framkvæmdanna. Markmiðið var að styrkja Brautarholtsskóla með því að byggja skólasundlaug, og verkefnið hlaut bæði ríkisframlag og stuðning Ungmennafélagsins. Sundlaugin hefur síðan verið mikilvæg fyrir sundiðkun, félagslíf og heilsueflingu í sveitarfélaginu.