Laug.is logo

Seltjarnarneslaug

Seltjarnarnesslaug er hluti af íþróttamiðstöð Seltjarnarness og tengist beint íþróttahúsi, knattspyrnuvelli og líkamsræktarstöð World Class. Heita vatnið í lauginni kemur beint úr borholum Hitaveitu Seltjarnarness í nágrenninu. Vatnið er sagt fara vel með viðkvæma húð og henta þeim sem þjást af exemi sem eykur við sérsöðu laugarinnar. Aðallaugin er 25 metra löng með fjórum brautum og hitastigi 29°C. Fyrir börn er bæði 48 fermetra barnalaug, 90 cm djúp og með 35°C hitastigi og grunn vaðlaug með hitastigi 36–38°C. Á svæðinu eru einnig fjórir heitir pottar, þar af einn nuddpottur, með hitastigi á bilinu 38–44°C og tveir kaldir pottar með hitastigi 4–8°C. Einnig má finna eimbað og rennibraut í lauginni. Seltjarnarnesslaug er sérstaklega fjölskylduvæn með leiktækjum fyrir börn og aðstöðu sem hentar fólki með skerta hreyfigetu. Sérklefi er í boði fyrir fatlaða og eldri borgara, sem gerir mögulegt að hafa aðstoðarmanneskju óháð kyni. Fjölbreytt starfsemi fer fram í tengslum við laugina. Þar á meðal sundleikfimi fjórum sinnum í viku, sundflot einu sinni í viku og námskeið í skriðsundi fyrir fullorðna. Sunddeild KR heldur reglulegar æfingar í lauginni og World Class býður upp á glæsilega líkamsrækt. Seltjarnarnesslaug sameinar góða aðstöðu til sunds, slökunar og afþreyingar með sérstöðu steinefnaríka vatnsins, sem gerir hana að vinsælum áfangastað fyrir fjölskyldur, þá sem vilja komast í ræktina eða leita að vellíðan í rólegu umhverfi.

Suðurströnd 8, 170 Seltjarnarnes