Laug.is logo

Reykjanes Ísafjarðardjúpi

Sundlaugin á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi er hluti af sögulegu umhverfi á þessu afskekkta svæði Vestfjarða. Laugin er útilaug, óvenjustór miðað við íslenskan mælikvarða, heilir 50 x 12,5 metrar, og hituð með náttúrulegu hveravatni sem rennur stöðugt í laugina allt árið um kring. Laugin stendur við það sem var áður skóli sveitarinnar, en þar er nú rekið hótel og önnur gistiaðstaða. Við laugina er gamalt gufubað, oft kallað græna gufubaðið, sem hefur staðið óbreytt í áratugi og nýtur sérstakrar hylli meðal gesta og heimamanna. Einnig hefur verið komið fyrir sólpalli og bekkjum ofan í lauginni, þar sem hitastig vatnsins er stundum svo hátt að hún er nær því að vera heitur pottur. Aðstaðan er einföld og látlaus en vel við haldið. Við laugina er snyrtileg búningsaðstaða og sturtur. Á svæðinu er einnig líkamsræktarsalur með öllu því helsta. Sundlaugin og umhverfið á Reykjanesi mynda einstaka heild - jarðhitasvæði, saga, ró og útsýni út á Ísafjarðardjúpið. Reykjanes er í um 500 metra fjarlægð frá þjóðveginum og þar er líka flugvöllur og bryggja.

Reykjanesi, 401 Ísafirði (dreifbýli)