Laug.is logo

Lýsulaugar

Lýsulaugar eru náttúrulegar baðlaugar í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsnesi við Grunnskólann á Lýsuhóli. Laugin er fyllt með heitu ölkelduvatni beint úr jörðu og er talin ein helsta heilsulind svæðisins. Vatnið er mjög steinefnaríkt, sérstaklega af magnesíum og kalsíum, og inniheldur grænþörunginn chlorella, sem gefur því grænan lit og er talinn hafa græðandi áhrif. Engin sótthreinsiefni eru notuð; hreinleiki laugarinnar byggir á náttúrulegu sírennsli. Laugarnar voru endurbættar árið 2019 og samanstanda nú af einni aðalsundlaug, tveimur heitum pottum og einum köldum potti. Hitastig vatnsins ú lauginni sveiflast milli 24–35°C eftir veðri og aðstæðum. Staðsetningin býður upp á einstakt útsýni til Snæfellsjökuls sem gerir upplifunina enn magnaðri. Laugin er opin frá júní og fram í miðjan ágúst. Aukaopnanir og frávik eru auglýst á Facebook-síðu eða heimasíðu Lýsulauga. Börn undir tíu ára aldri fá einungis aðgang í fylgd með syndum einstaklingi sem er að minnsta kosti fimmtán ára og ber fulla ábyrgð á barninu. Gjaldskylda fellur niður við 67 ára aldur og öryrkjar fá frítt gegn framvísun skírteinis. Afsláttarkort gilda bæði fyrir Lýsulaugar og sundlaugina í Ólafsvík.

Lýsuhóli, 356 Snæfellsbæ