Laug.is logo

Krauma

Krauma er baðlón við Deildartunguhver í Reykholtsdal, í um klukkutíma akstursfjarlægð frá Reykjavík. Þar eru sex laugar – fimm heitar og ein köld – sem fylltar eru eingöngu með hreinu vatni úr hvernum, kælt niður með varmaskiptum. Engin hreinsiefni eru notuð enda er hreinlætið tryggt með stöðugu gegnumstreymi heita vatnins úr Deildartunguhveri - sem er sá vatnsmesti í Evrópu. Aðstaðan í Kraumu samanstendur af laugum með mismunandi hitastigi, slökunarherbergi með arni og rólegu umhverfi, gufubaði og infrarauðu baði. Hönnunin leggur áherslu á náttúruleg efni og einfaldleika og laugin sjálf er grunn, þar sem gestir sitja frekar en synda. Veitingastaður er á staðnum sem býður létta rétti, kaffi og meðlæti, með áherslu á hráefni úr héraði. Krauma er opin almenningi og hentar jafnt ferðafólki sem vill staldra við í ró og slökun og gestum sem dvelja á svæðinu.

Deildartungu 3, 320 Reykholti