Sjóböðin í Hvammsvík
Sjóböðin í Hvammsvík eru náttúruleg heit böð í Hvalfjarði, í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Á svæðinu eru átta laugarker með mismunandi hitastigi sem liggja við sjóinn og ná sumar laugarnar niður í fjöruna. Heita vatnið í Hvammsvík er um 90 gráður að uppruna og blandað saman við sjó beint úr hafinu. Vatnið er því hvort tveggja salt og heitt og auðveldara er að fljóta í því en í venjulegu ferskvatni. Laugarnar eru með stöðugu gegnumstreymi sem tryggir vatnsgæði án notkunar hreinsiefna. Hitastig í laugunum er breytilegt, sérstaklega í þeim neðstu en þar hafa sjávarföllin áhrif. Gufuhellir og utandyra slökunarsvæði eru einnig hluti af aðstöðunni. Boðið er upp á léttar veitingar í veitingastaðnum í Hvammsvík og ýmsa viðburði og leiðsögn tengda sjósundi, gufubaði og annari afþreyingu. Aldurstakmark er 12 ár og nauðsynlegt er að bóka aðgang fyrirfram á vefsíðunni hvammsvik.is.