Gvendarlaug í Bjarnarfirði
Gvendarlaug hins góða, einnig þekkt sem sundlaugin við Laugarhól, er 25 metra löng sundlaug sem staðsett er við Hótel Laugarhól í Bjarnarfirði á Ströndum. Laugin er hlý og án sterkra hreinsiefna, enda streymir stöðugt heitt vatn úr uppsprettum í hana. Við hlið sundlaugarinnar er vinsæl náttúrulaug með hitastigi á bilinu 39–41°C, sem nýtur mikilla vinsælda meðal gesta sem vilja njóta náttúrunnar. Fyrir neðan laugarnar rennur svo volgur lækur sem börn hafa gaman af að busla í. Hluti af vatninu sem streymir í sundlaugina kemur frá Gvendarlaug hinni fornu, sem var vígð af Guðmundi góða Hólabiskupi á 13. öld. Sú laug er nú friðuð og í umsjá Minjastofnunar. Líkt og fleiri laugar sem Guðmdundur góði vígði var vatnið í lauginni talið hafa lækningamátt. Sundlaugin var byggð á fimmta áratug 20. aldar með sameiginlegu átaki bænda í hreppnum. Hún er opin alla daga og engin formleg baðvarsla eða sundgæsla er á svæðinu. Gestir þurfa því að nýta aðstöðuna á eigin ábyrgð.