Geosea
GeoSea sjóböðin eru við Vitaslóð 1 á Húsavík, á Húsavíkurhöfða rétt við gulan vitann með útsýni yfir Skjálfandaflóa. Böðin byggja á jarðhita- og jarðsjólindum sem hafa lengi verið nýttar á svæðinu, meðal annars við svokallað Ostakar sem áður var vinsæll baðstaður heimamanna. Aðstaðan samanstendur af tengdum heitum laugum þar sem sjórinn rennur yfir kantana og útsýnið er einstakt. Steinefnaríkt vatnið kemur úr tveimur borholum og rennslið í laugarnar sér til þess að ekki er nauðsynlegt að nota hreinsiefni eða síubúnað. Inni er móttaka, búningsklefar og sturtur og húsakosturinn er hannaður í samræmi við landslagið við klettabrúnina. Við laugina er bar þar sem gestir geta keypt veitingar, auk setuaðstöðu innandyra. GeoSea er baðstaður í fremstu röð og er frammúrskarandi afþreying fyrir gesti og íbúa svæðisins.