Ásgarðslaug Garðabæ
Ásgarðslaug er staðsett í íþróttamiðstöðinni Ásgarði í Garðabæ. Aðstaðan í Ásgarðslaug hefur nýlega verið endurnýjuð og býður upp á fjölbreytta möguleika á afslöppun og sundi. Þar er 25 metra sundlaug með fimm brautum og hitastigi 29°C, barnalaug (65 cm djúp og 32°C heit) með litla rennibraut, vaðlaug og barnalaug fyrir yngri börn með 35°C heitu vatni. Auk þess eru tveir heitir pottar (39°C og 42°C), kaldur pottur (6–8°C) og eimbað við 47°C. Barnalaug er með bunustútum sem bjóða upp á nudd. Aðstaðan hentar vel fyrir alla aldurshópa og er sérstaklega góð fyrir hreyfihamlaða. Búningsklefar eru með fyrsta flokks aðgengi og Poolpod lyfta er til staðar fyrir þá sem þurfa aðstoð við að komast í laugina. Einnig eru útiklefar fyrir hvort kyn og nýjar útisturtur hafa verið settar upp. Í Ásgarði er sömuleiðsi æfinga- og keppnisaðstaða íþróttafólks á öllum aldri, fimleikahús, fjölnotasalir og þreksalur fyrir almenning sem fylgir aðgangi að sundlaug. Ásgarðslaug er vinsæll staður miðsvæðis í Garðabæ fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem vilja njóta fjölbreyttrar aðstöðu í rólegu og notalegu umhverfi.